Kim Kardashian hefur svo sannarlega breytt um fatastíl eftir að hún byrjaði með rapparanum/fatahönnuðinum Kanye West.
Kanye endurnýjaði allan fataskáp raunverulekastjörnunnar og er skápurinn fullur af þröngum og “skin hugging” fatnaði. Bomban var til dæmis úti að borða í Miami með besta vini sínum Jonathan og klæddist afar þröngum svörtum leðurkjól þar sem lögulegi afturendinn hennar sást svo vel að hún hefði næstum getað sleppt því að vera í fötum.
Fyrr um daginn var Kim búin að æfa sig á skotmörkum með Jonathan þar sem hún “twittaði” mynd og skrifaði undir hana:
“Innbrotsþjófar-varið ykkur”…
Akkúrat.
Tökum á þætti systranna Kourtney og Kim fer bráðum að ljúka og Kim fer von bráðar aftur til Los Angeles þar sem hún mun halda áfram að módelast og hugsanlega flytja inn með Kanye.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig