Kim Kardashian er með svakalega flottan líkama og er alls ekki bara skinn og bein, og merkilegt nokk, dömunni leiðist ekki að setja myndir af sjálfri sér á Twitter.
Kim var á leiðinni að sóla sig á sundlaugarbakkanum þegar hún ákvað að setja inn myndir af sér og skrifaði við þær; “#nofilter #nophotoshop” Kim er alfarið mótfallin því að það sé verið að breyta eða fikta mikið með myndir sem eru teknar af henni.
Kim hefur sagt frá því í viðtölum að hún sé alls ekki að telja kaloríurnar en fari samt sem áður í ræktina til þess að tóna sig upp, þegar hún fer út að borða þá borðar hún það sem hún vill, hún nennir nefninlega ekki að eyða lífinu sínu í að telja ofan í sig hitaeiningarnar.
Kim hefur sætt sig við það að hún verði aldrei ein af mjóu stelpunum og eftir að hún sætti sig við það þá hefur henni sjaldan eða aldrei liðið betur og er hæstánægð með mjúku línurnar sínar.
Svei mér þá ef að það er ekki bara hægt að taka ofurbombuna til fyrirmyndar um helgina og sleppa því að telja karólínurnar, nei ég meina kalóríur…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig