Þrátt fyrir skilnaði og erfiðleika í fjölskyldunni virðist Kim Kardashian svífa um á bleiku skýi þessa dagana, alsæl með litlu stelpuna sína og nýtrúlofuð!
Kanye fór á skeljarnar í gær og Kim játaðist honum að sjálfsögðu enda hefur parið ekki farið leynt með ást sína á hvort öðru frá því þau byrjuðu saman. Kanye hefur reyndar viðurkennt að hann hafi alltaf verið að bíða eftir Kim og hafi verið skotinn í henni í mörg ár.
Kanye leigði heilan leikvang undir herlegheitin og bað Kim sinnar fyrir framan vini og vandamenn en bónorðið var þaulskipulagt og sagði rapparinn engum frá áformum sínum. Þetta mun verða þriðja hjónaband Kim en fyrsta hjónaband Kanye.
Mamma Kim, Kris og fósturpabbi hennar Bruce standa í skilnaði um þessar mundir sem og Khloe systir hennar þannig að þetta eru sannarlega gleðifréttir innan Kardashian fjölskyldunnar!
Vonandi verða Kima og Kanye eða “Kimye” hamingjusöm til æviloka en fregnir herma að þau séu jafnvel að íhuga að verða ólétt aftur von bráðar því Kanye þráir annað barn með henni Kim sinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig