Khloe Kardashian gaf út yfirlýsingu á heimasíðu sinni þess efnis að hún hafi ákveðið að hætta að styðja PETA en daman sat fyrir hjá þeim fyrir nokkrum árum í herferð sem kallast ” I’d rather go naked than wear fur”.
Dropinn sem fyllti mælinn varð þegar kona kastaði hveiti yfir Kim systur hennar á glamúrus viðburði sem Kim hélt í tilefni þess að hún var að senda frá sér nýjan ilm. Hveitikastarinn er tengd inn í starfsemi PETA að eigin sögn, en PETA hefur hinsvegað neitað öllum ásökunum og tengingum við konuna.
Khloe er ekki sátt við PETA en hún er einnig ötull talsmaður gegn einelti.
PETA hefur lagt mikla áherslu á það að auglýsa að Kim Kardashian gangi í loðfeldum og svo framvegis með stórum auglýsingaskiltum. Khloe finnst þau hafa gegnið of langt í þeim efnum og lagt hana í einelti.
Hún ætar því að styðja systur sína og hætta að vera talsmaður PETA en segist samt sem áður ekki ætla að ganga í loðfeldum.
Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa hér.
Myndir fengnar af heimasíðu Khloe: www. khloekardashian.celebuzz.com
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig