Í nýjasta hefti slúðurblaðsins STAR er því haldið fram að raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian og Lamar Odom séu á barmi skilnaðar sem myndi kosta fleiri fleiri milljónir.
Þar er því haldið fram að maðurinn sé kominn með nóg af því að hafa myndavélar í kringum sig allann sólarhringinn, hann hefur líka fengið nóg af því að láta konuna stjórna öllu sem hann gerir, allt frá því hvað hann borðar til þess hvaða vini hann umgengst.
Star ýjar einnig að því að Lamar langi til að eignast barn en að frúnni gangi það eitthvað treglega og því sé hann að missa þolinmæðina. Hann á að hafa farið ófögrum orðum um konuna sína vegna þessa með þeim afleiðingum að hún flúði til fjölskyldu sinnar í Flórída.
Hvort eitthvað sé raunverulega til í þessu slúðri á hinsvegar eftir að koma í ljós. Spurning um að pýra bara augun yfir þáttunum og leita að merkjum?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.