Khloe Kardashian landaði nýju “giggi” fyrir skemmstu sem kynnir í X-Factor þáttunum í Bandaríkjunum.
Daman hefur alltaf þurft að sæta gangrýni vegna íturvaxins líkama síns og svarar núna fyrir sig fullum hálsi.
Khloe var í viðtali ásamt systrum sínum í Cosmopolitan UK og þar segir hún að hún viti það vel að hún verði aldrei í stærð núll en sé samt eins og flestar konur stundum ósátt yfir líkama sínum.
Hún segir einnig:
“Ég á mínar stundir, stundum þoli ég gagnrýnina og stundum ekki. Hverjum er ekki sama þó ég sé ekki í stærð núll? Ég hef engan áhuga á því að vera í stærð núll og hef sætt mig við líkama minn og elska hann. Ég hef einnig lært það að elska lífið -og ég elska líf mitt og hver ég er”
Systurnar tala einnig um yngri systur sína Kendall í blaðinu en hún er á hraðri leið með að verða súpermódel og þær óska þess að þær hefðu verið jafn sjálfsöruggar og hún er í dag þegar þær voru jafn gamlar henni.
Systurnar eru farnar að selja fatnað sinn úr Kardashian Kollection línunni sinni í Bretlandi og hefur hún notið mikilla vinsælda þar.
Það er nóg að gera hjá dömunum þessa dagana en á milli þess sem þær taka upp raunveruleikaþátt reka þær fatabúð, hanna fatnað og eru nýbúnar að senda frá sér snyrtivörulínu ásamt mörgum öðrum verkefnum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig