Kendra Wilkonson er þekkt fyrir flest annað en að vera bara ómáluð og kasjúal á ströndinni með kallinum og krakkanum.
…en kasjúal var hún engu að síður þegar hún tjillaði á ströndinni með Hank eitt og tvö um helgina.
Kendra var í síðum bol og mun síðari stuttbuxum en hún sést vanalega í. Þar fyrir utan var hún algerlega ómáluð, ekki einu sinni með maskara!
Það er kúl hjá Kendru. Allt of margar konur og stelpur eru ekki nægilega sjálfsöruggar til að fara út ómálaðar en Playboy stjarnan fyrrverandi púllar þetta.
Kendra er nýkomin heim úr ferðalagi til Ástralíu þar sem hún stóð í kynningum á raunveruleikaþætti sínum sem er sýndur á E. Með í för var mamma hennar en Hankarnir tveir voru heima á meðan.
Kendra varð upprunalega fræg fyrir að vera ein af kærustum Hugh Hefner og búa á Playboy setrinu en hún flutti út þegar hún kynntist fótboltakappanum Hank. Saman eiga þau litla Hank sem er svaðalega sætur með krullurnar sínar útum allt.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.