Kelly Osbourne fékk að heyra það þegar hún mætti með naglalakk sem kostaði 31.215.000,00 kr eða 250.000 bandaríkjadali á Emmy verðlaunahátíðina síðasta sunnudag.
Kelly baðst hálfpartinn afsökunar á Twitter síðu sinni þar sem hún sagði að hún sjái að hún hafi móðgað marga með því að bera lakkið á nöglunum, hún sjái hvað allir eru að meina en fyrir henni var þetta tækifæri sem gefst bara einu sinni á ævinni #MyApologizes skrifar hún.
Kelly vill alls ekki vera fullkomin, enda viðurkennir hún fúslega að hún sé alls ekki fullkomin heldur langt frá því. Hún vill ekki vera sætasta stelpan á svæðinu heldur bara hún sjálf.
EN hvernig fór Kelly að því að komast í svona gott form? Jú með hreyfingu og breyttu mataræði!! Kelly segir að það séu ENGAR töfralausnir til, þú þerft bara góðan sjálfsaga og MÆTA í ræktina eða hvert sem er þar sem þú stundar þína hreyfingu! Þú þarft ekki að umturna öllu lífinu þínu þegar kemur að því að breyta um lífstíl og ef þig langar í köku-fáðu þér þá eina kökusneið EKKI borða alla kökuna. Það eru litlu hlutirnir sem skipta máli þegar þú hefur lífstílsbreytingu.
Þar höfum við það, meistaramánuðurinn er runninn upp -ætlar þú að taka þátt og hvaða breytingar viltu gera á lífi þínu? Þú finnur Facebooksíðu meistaramánaðarins hér.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig