Kelly Osbourne er í viðtali við tímaritið Glamour í janúarheftinu sem von er á. Þar ræðir hún meðal annars hár sitt og mömmu sinnar og rándýra naglalakkið sem hún var með fyrr á árinu.
Kelly vakti mikla athygli þegar hún mætti með rándýrt naglalakk þegar hún gekk rauða dregilinn fyrir Emmy verðlaunin fyrr á árinu. Kelly segir að nokkrar dömur hafi verið beðnar um að vera með lakkið á rauða dreglinum til þess að auglýsa það og að sjálfsögðu sagði hún já, henni fannst það heiður. Hún segir einnig að hún viti alveg að lakkið hafi verið dýrt en líka að ef einhver myndi biðja mann að prófa svona þá segði maður að sjálfsögðu já! Svo fólk getur farið að þegja núna.
Kelly er með fjólublátt hár núna og mamma hennar er stöðugt að hringja í hana og segja henni að það sé tímabært að vera ljóshærð aftur. Kelly svarar bara að hún sé með slökkviliðsbílarautt hár og geti því lítið sagt.
Þegar hún er spurð hvort hún myndi vera með eldrauðan hárlit eins og mamma sín þá segir Kelly að hún yrði mini me útgáfa af Sharon. Hún hafi einu sinni prófað að vera með rautt hár og þá hafi hún litið út eins og gulrót! Hún segir einnig að hún forðist dökkbrúnan hárlit því ef hún væri með þann lit þá liti hún út alveg eins og pabbi sinn Ozzy. Kelly hefur þó prófað að vera með grænt, blátt, fjólublátt og svart hár og segist vera hrifnust af fjólubláa litnum.
Kelly notar hárlitinn sinn og hárið til þess að tjá sig, þegar hún var þrettán ára gömul þá var hún með gyllt hár niður á rass en síðan lenti hún í rifrildi við mömmu sína Sharon, sagði henni að F** a sér og klippti helminginn af hárinu sínu en Ozzy greyið gat ekki horft á Kelly án þess að liggja í hláturskasti vegna klippingarinnar.
Þetta er sannarlega hress fjölskylda og Kelly passar vel í hópinn.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig