Kelly Osbourne hefur snúið lífi sínu alveg við og heldur úti mun heilbrigðari lífstíl núna heldur en fyrir nokkrum árum.
Kelly hefur misst mörg kíló á undanförnum tveimur árum og er komin í stærð átta (í evrópu) en þrátt fyrir að vera komin í gott form og líða vel líkamlega þá segist hún vera svokallaður “emotional eater” eða týpan sem borðar þegar tilfinningar hennar fara á fullt.
Ef hún kemst í uppnám þá er fjandinn laus en hún hefur náð að temja sig og fara varlega í að “missa sig” þegar tilfinningarússíbaninn fer á fulla ferð.
Kelly leyfir sér þó einn nammidag í viku og fær sér pítsu, kökur og ost, hún segist hreinlega ELSKA Brie ost. Kelly hefur samt lært það að borða bara þangað til hún verður södd og það gerir hún líka á nammidögum, passar sig á því að fara ekki yfir strikið þó það sé nammidagur eða svindldagur.
Kelly segist hafa lagt afar hart að sér að koma sér í gott form og hefur lært að elska sjálfa sig í gegnum árin, hún hefur einnig lært að það er ekki gott að vera svangur…
…maður á ekki að neita sér um að borða svo framarlega sem það sé í hófi, þeir sem eru svangir séu einfaldlega bara leiðinlegir!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig