Fyrsti Idol sigurvegarinn og söngkonan Kelly Clarkson trúlofaði sig á síðasta ári og margir tóku eftir því hversu vel söngkonan leit út eftir að hún kynntist unnusta sínum.
Kelly segir að hún hafi látið heilsuna alveg sitja á hakanum þangað til hún kynntist verðandi eiginmanni sínum, Brandon, en eftir að þau byrjuðu saman vildi hún líta sem best út því hana langaði að líða betur þegar þau “bregða á leik” í rúminu.
Kelly fór þó ekki í einhvern dramatískan megrunarkúr heldur bætti hún við hreyfingu ásamt því að minnka skammtastærðirnar, borða hollari mat og hætti að narta í eitthvað seint á kvöldin. Kelly missti tæp átta kíló á einum mánuði með þessari lífstílsbreytingu en hún segir að það sé ótrúlegt hvað maður geti grennst hratt ef maður minnkar bara skammtastærðirnar í máltíðum hjá sér.
Kelly segist ekki ætla sér að fara í einhvern skyndikúr, hún vilji missa kílóin á heilbrigðan hátt með hollu mataræði og hreyfingu.
Kelly og Brandon æfa einnig saman og Kelly segir að það sé gott fyrir sambandið, þau fara oft saman í góðan hjólatúr og hreinlega elska að vera úti, vera aktív saman og hreyfa sig.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig