Söngkonan Katy Perry og söngavarinn John Mayer eru voða skotin í hvort öðru þessa dagana eftir að hafa verið sundur og saman undanfarið.
Parið sást knúsast og vera innilegt á tónleikum með Rolling Stones á dögunum og þau létu eins og ástfangnir unglingar, John var sífellt að hvísla einhverju í eyra Katy sem fékk hana til þess að glotta annað slagið og brosa blítt til kærastans.
Parið skemmti sér afar vel á tónleikunum og tók vel undir þegar hljómsveitin spilaði sína helstu slagara. Það er ekki annað að sjá að sambandið sér sterkt hjá parinu í augnablikinu en John er þekktur fyrir það að vera með nýjar dömur upp á arminum og stutt sambönd.
Katy skildi hinsvegar við Russell Brand fyrr á árinu og er örugglega ekki að leita sér að einhverjum skyndikynnum, við sjáum hvað setur, ætli að þau verji jólunum saman?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig