Söngkonan Katy Perry hafnaði á dögunum feitu tilboði frá framleiðendum American Idol…
Laun söngkonunnar hljómuðu upp á 20 milljónir bandaríkjadala eða 3 milljarða í íslenskum krónum!
Katy sagði að það væri enginn vegur að geta verið dómari þar sem hún er bundin við önnur verkefni. Framleiðendurnir gerðu þrátt fyrir það allt sem þeir gátu til þess að reyna að fá hana til þess að vera dómari en ekkert gekk og Katy hafnaði þeim.
Kanadíska söngkonan Alanis Morisette hefur einnig verið orðuð við dómarasætið en framleiðendurnir leita núna logandi ljósi að nýjum dómara eftir að Jennifer Lopez og Steven Tyler hættu.
Mariah Carey hefur þegar verið ráðin í eitt sætið en það vantar ennþá þriðja dómarann. Tökur á nýju seríunni hefjast í haust.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig