Söngkonan Katy Perry hefur staðið í ströngu undanfarið. Skilnaður hennar við Russel Brand er loksins gengin í gegn og hún er nýbúin að frumsýna kvikmynd þar sem skyggst er á bakvið tjöldin í lífi hennar.
Katy er forsíðustúlka ELLE í september en þegar hún er spurð út í sambönd og hjónaband þá segir hún:
“Það er alveg augljóst að ég hef margt um þetta mál að segja núna en samt sem áður segi ég alltaf: aldrei að segja aldrei – ég leyfi ástinni að ráða ferðinni þegar hún bankar uppá hjá mér næst”.
Söngkonan elskar að syngja og koma fram. Hún hefur samt ákveðið að um leið og henni finnst þetta vera orðið leiðinlegt þá hætti hún og breyti um starfsvettvang. Hún geti ekki verið sælgætisdrottningin (The Candy Queen) endalaust.
“Sem söngkona og skemmtikraftur er óneitanlega hægt að segja að maður sé fyrirmynd. Ég get samt ekki sagt til um það hvenær maður eigi sofa hjá í fyrsta skipti eða byrja að reykja eða ekki en ég reyni samt að lifa lífi mínu heiðarlega og eftir minni sannfæringu og með því er ég vonandi að senda rétt skilaboð til aðdáenda minna”
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig