Söngkonan Katy Perry prýðir forsíðu tímaritsins Parade nú í júlí, afar þjóðleg í fánalitunum.
Kvikmynd hennar Katy Perry: Part Of Me verður frumsýnd vestanhafs þann 5.júlí og verður spennandi að fá að skyggnast aðeins baksviðs með söngkonunni.
Katy var spurð að því hvers vegna henni fannst að skilnaðurinn og allt í kringum hann þyrfti að vera opinberaður í myndinni og svaraði hún því þannig að henni hefði fundist hún vera hálfpartinn að svíkja aðdáendur sína og þeir hefðu verið eitt spurningarmerki þegar þeir gengu út af myndinni og hugsað með sér “vá tók enginn eftir fílnum í herberginu”?
Hún vill einnig að áhorfendur sjái að hún er sterkur karakter sem þolir ýmislegt en hún viðurkennir það einnig að hún á sér mýkri hliðar sem fólk vill líka fá að sjá, hún vildi sýna áhorfendum allan skalann af skapi sínu og tilfinningum.
Nýjasta lagið hennar “Wide Awake” er nýkomið í spilun en það er töluvert ólíkt “Tennage Dream” sem fjallar um fyrstu ástina og hvernig hún upplifir hana. Wide Awake er meira um það þú heldur að þú sért búin að finna lífsförunaut þinn en svo allt í einu glaðvaknar þú og áttar þig á því að þetta er ekki eitt stórt ævintýri- heldur raunveruleiki sem gekk ekki upp.
Katy er sífellt að skipta um útlit og hún segist alltaf vera að gera einhverjar tilraunir með tískuna þar sem að hún verði fljótt leið á sama stílnum.
Núna er hún hrifnari að dökkum stíl en fyrir hann var hún meira tyggjókúlusælgætisskvísa en fékk nóg af því lúkki. Hún heldur líka að áhorfendurnir hafi verið komnir með nóg og því vildi hún breyta til. Alltaf að breyta til þessar skvísur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig