Það var frekar sveitt stemning í afmælisveislu söngkonunnar Katy Perry en þemað var ‘Wild West’ þannig að gestirnir mættu allir sem kúrekar, indjánar eða annað því tengt…
…Fatahönnuðurinn Jeremy Scott mætti galvaskur á svæðið en sumar 2012 lína hans er einmitt innblásin af kúrekum og sveitastuði! Að sjálfsögðu klæddist afmælisbarnið hönnun Jeremy Scott og tók sig bara vel út í bleikum ‘shæní’ galla! Það er óhætt að segja að þemað hafi verið tekið alla leið en tvífari Dolly Parton var fengin til að halda uppi stuðinu og gestirnir tóku villta vesturs þemanu alvarlega!
Tékkið á myndunum fyrir neðan sem fengnar voru að láni af The Cobra Snake.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.