Þá eru þau Tom Cruise og Katie Holmes búin að ganga frá skilnaðarsáttmála og skrifa undir pappíra.
Frá þessu greinir lögfræðingur leikkonunnar, Jonathan Wolfe. Sá segir fjölskyldu Katie himinlifandi enda horfi hún nú fram á nýja og spennandi tíma í lífi sínu.
Að sögn slúðurvefsins TMZ hafa lögfræðingar þeirra beggja setið í maraþon samningaviðræðum frá því Katie gerði Tom ljóst að hún vildi skilja við hann. Eitt meginatriði þess að skilnaðurinn gekk greiðlega í gegn var samkomulag sem Katie gerði við hann í sambandi við Suri en faðir hennar krafðist þess að fá að eiga “innihaldsrík” og “markverð” samskipti við hana – hvað sem það nú þýðir.
Talsmaður leikkonunnar þakkaði jafnframt lögmönnum Toms fyrir fagmennsku sína og vilja til að koma málinu í höfn á sem skemmstum tíma.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.