Vesalings Katie Holmes mátti ekki gera neitt nema með leyfi eiginmannsins Tom Cruise.
Allar ákvarðanir, stórar sem smáar, þurfti að bera undir hann hvort sem þær voru í einkalífinu eða sneru að vinnunni hennar. Hún var komin með miklu meira en nóg og fannst hún ekki getað andað nema að fá leyfi frá honum.
Þegar Katie lék í myndinni “Thank You For Smoking” (hún lék í henni þegar þau voru að byrja að deita), þá skipaði Tom framleiðendum að fjarlægja allar auglýsingar sem innihéldu Katie og Aaron Eckhart (mótleikara hennar) að kyssast eða knúsast!
Þegar Katie lék í “Batman Begins” þá mátti hún ekki fljúga með hinum leikurunum, heldur átti hún að fara í einkaflugvél Tom en heimildir segja að Morgan Freeman hafi fundist þetta viðurstyggilegt.
Núna vilja menn vestanhafs einnig meina að það sé ekki Vísindakirkjunni að kenna að þau séu að skilja -hún sé bara að nota það sem afsökun til að særa Tom….
Við skulum bara vona að Katie fari nú að leika aftur á fullu og sýni eiginmannium fyrrverandi hvar Katie keypti ölið!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig