Leikkonan Katie Holmes er í viðtali í septemberútgáfu tímaritsins C California en hún fór í viðtalið nokkrum dögum áður en hún sótti um skilnaðinn við Tom.
Blaðakonan sem tók viðtalið segir að þegar hún hlusti aftur á upptökurnar sjái hún heildarmyndina, Katie hafi verið mjög meðvituð um það sem hún var segja og minnist ekki á Tom. Nafn hans kemur ekki einu sinni fram í viðtalinu!
Katie er einnig spurð að því hvort að Suri hafi gert hana og Tom nánari og hún svarar þannig:” Ég veit það ekki, ég meina……….ég veit það ekki……..fólk hefur verið að eiga börn í langan tíma”.
Katie er á fullu að hanna nýja fata og fylgihlutalínu sem kallast Holmes & Yang og spurð út í hana svarar hún að allar konur vilji vera kynþokkafullar í fötunum sem þær klæðast án þess að allir viti af því.
Þegar samtalið færist að ferli leikkonunnar svarar hún þannig: “Ég er tilbúin að takast á við hlutverk sem eru meira ögrandi. Ég vann mikið þegar ég var yngri og vildi síðar upplifa lífið sjálft en ekki bara leiklistina. Mér finnst líf mitt vera í meira jafnvægi núna og ég veit nákvæmlega hvað ég hef uppá að bjóða. Núna vil ég vera á sama stað á ferlinum og ég er í einkalífinu”.
Katie stígur bráðlega á sviðið á Broadway eins og ég fjallaði um hér, greinilega spennandi tímar framundan hjá henni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig