Katie Holmes hefur ákveðið að koma sér aftur á kortið og mun í haust stíga á fjalirnar á Broadway í New York.
Leikritið sem hún valdi heitir “Dead Accounts” og mun hún fara með hlutverk ungrar konu sem býr hjá foreldrum sínum og er á sama tíma að reyna koma lífi sínu í lag.
Það verður spennandi að fylgjast með Katie næstu árin og vonandi fer hún að blómstra aftur í leiklistinni eftir margra ára hlé undir stjórnsamri hendi eiginmannsins fyrrverandi.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig