Katie Holmes mætti í rauðum leðurbuxum í settið til Jay Leno í gærkvöldi.
Leikkonan er þekkt fyrir að vera fremur “skver” í klæðaburði en í gær kaus hún að sýna villtu hliðina. Buxurnar eru hannaðar af Isabel Marant, úr síðustu haustlínu en stelpur eins og Kate Moss eða Erin Wasson eru þekktari fyrir þennan stíl.
Buxurnar gera ekkert rosalega mikið fyrir hana og heildarlúkkið er frekar skrítið en það er gott að hún sé að prófa sig áfram blessunin og hárið er töff.
Í viðtalinu talaði Katie meðal annars um væntanlega kvikmynd – Don’t be afraid of the dark, og forsíðuna á Spænska Vouge þar sem hún er alveg að rokka í blúndum og með “dominatrix” hatt á höfði.
Go Katie!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.