Katie Holmes getur átt von á því að fá allt að 50 milljónir bandaríkjadala, eða sjö milljarða, frá Tom vegna skilnaðarins.
Þetta segir frægur skilnaðarlögfræðingur í Hollywood. Lögmaðurinn telur einnig að sáttmálinn sem þau gerðu með sér um daginn hafi falið í sér dágóðar peningagreiðslur til Katie.
Þess má þó geta að þessi himinháa upphæð er fyrir utan meðlagið en meðlagsgreiðslur eru um tíu prósent af innkomu þess sem þarf að greiða þær og miðað við tekjur Tom Cruise, sem er tekjuhæsti leikarinn í Hollywood, þarf hann þá að greiða dágóða summu til Katie í meðlag!
Suri litla er þekkt fyrir það að ganga í dýrum merkjafatnaði. Fataskápurinn hennar metinn á yfir miljjón dollara og er því er “nauðsynlegt” að hún fái nú að halda þeim lífstíl áfram- er það ekki?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig