Katie Holmes (æ þú veist, sú sem ALLIR í slúðurheiminum eru að smjatta á í dag) er greinilega búin að undirbúa skilnaðinn við Tomma stjórnsama í dágóðan tíma…
Leikkonan prýðir forsíðu ELLE nú í ágústmánuði og svarar þar nokkrum spurningum en þegar hún var spurð út í Tom Cruise þá svaraði hún…
” Hann hefur verið Tom Cruise í þrjátíu ár. Ég veit hver ég er, hvar ég er og hvert ég vil fara og vil einbeita mér að því”
Um það að fá ýmis fríðindi vegna þess að hún var gift Tom:
“ Manni eru ekki bara réttir hlutirnir út af engu, í raun þarf maður að vinna meira fyrir hlutunum þegar maður lifir jafn opinberu lífi og er í jafn opinberum aðstæðum”.
Um það að vera mun öruggari með sjálfa sig eftir því sem að hún eldist:
“Mér líður án nokkurs vafa mun betur í mínu sigin skinni núna, mér finnst ég meira “sexý”. Ég er að finna sjálfa mig, það er nýtt stig í mínu lífi.”
Ljósmyndarinn Carter Smith hafði þetta að segja um Katie eftir myndatökuna:
“Hún talaði ekkert um Tom á ástríkan hátt heldur forðaðist að svara spurningum sem sneru að honum og talaði um sjálfa sig í staðinn”.
Þar hafið þið það. Kella örugglega löngu búin að ákveða þetta og rokið svo í að fara alla leið með hjálp fjölskyldu sinnar á meðan Tom Cruise var á klakanum!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig