Heimildir vestanhafs segja að samkvæmt kaupmálanum sem Katie Holmes skrifaði undir þegar hún giftist Tom Cruise fái hún lítið sem ekkert út úr skilnaðinum nema það sem hún kom sjálf með inn í hjónabandið.
Nánir vinir leikkonunnar segja einnig að hún hafi ekki farið inn í þetta samband peninganna vegna -hún sé fullfær um að vinna fyrir sér sjálf.
Það eina sem að Katie fer fram á er að fá fullt forræði yfir dóttir þeiira Suri og það gæti reynst þrautin þyngri þar sem að Tom er með sterkan her lögmanna sér við hlið sem hafa séð um skilnaði hans áður.
Þetta virðist sýna það og sanna að Katie er ekki að sækja um skilnað fyrir peninganna og samkvæmt heimildum var hjónabandinu lokið fyrir nokkru síðan en Katie ákvað að taka af skarið og sækja um skilnaðinn.
Katie hefur einnig rekið öryggisvarðahópinn sem var ávallt henni við hlið þar sem að þeir voru of nánir Tom og hefur ráðið sína eigin öryggisverði.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig