Það hefur án efa þurft hug og þor hjá Katie Holmes til að taka skrefið og skilja við Tom Cruise en það borgaði sig því Katie hefur ekki verið hamingjusamari eða litið betur út í mörg ár!
Katie sér ekki eftir neinu -nema kannski hvernig hún fór að því að sækja um skilnaðinn og fara á bakvið Tom.
Hún gersamlega blómstrar þegar hún gengur um götur New York borgar, er farin að ganga aftur í háum hælum og er síbrosandi en hún gerði lítið af því að brosa í hjónabandinu, sérstaklega undir lok þess.
Leikkonan er alsæl að getað einbeitt sér að ferli sínum, hún hittir fjölskyldu sína reglulega (sem hún gerði ekki á meðan hún var gift Tom) og fatastíll hennar hefur breyst til hins betra. Núna ræður hún sér sjálf en þegar hún var gift Tom þá réð hann hvaða kvikmyndahlutverk hún tæki að sér, hverja hún hitti og hvað hún gerði!
Katie var með skilnaðinn í undirbúningi í ár án þess að Tom vissi af því. Hún taldi það vera henni og Suri fyrir bestu og hún var einnig komin með meira en nóg af Vísindakirkjunni og bullinu þar!
Vel gert hjá Kate sem er hamingjusamari núna en nokkru sinni fyrr.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig