Kate Moss hefur oftar en ekki látið mynda sig bera að ofan eða í nánast engum fatnaði og í desemberútgáfu spænska Vogue liggur hún nakin á bekk með silkiábreiðu yfir sér.
Kate hefur ákveðið að leyfa tökuliði að kvikmynda sitt daglega líf en hingað til hefur hún verið afar prívat manneskja, nema þegar kemur að því að stilla sér upp fyrir framan myndavélarnar. Þá hverfur öll feimnin eins sjá má á myndinni. Kate fær nautabanann José Mari Manzanares í lið með sér á forsíðuna og það er óhætt að segja að útkoman sé stórglæsileg en José er mjög frægur nautabani í heimalandi sínu.
Það var ljósmyndarinn Mario Testino sem tók myndirnar en Kate er einnig á forsíðu tímaritsins. Forsíðumyndin er afar falleg af Kate þar sem hún horfir beint í myndavélina með svart hárnet fyrir andlitinu eins og margar spænskar konur bera við sorgarathafnir.
Gullfalleg er hún frú Kate Moss og það verður spennandi að fá að skyggnast aðeins á bakvið tjöldin í lífi ofurfyrirsætunnar ef það verður eitthvað úr þessu en stjörnurnar virðast til í smá raunveruleikaþáttastemmningu þessa dagna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig