Leikkonan Kate Hudson hefur í nógu að snúast þessa dagana. Hún er tveggja barna móðir, á breskan unnusta og flakkar því mikið á milli Bretlands og Bandaríkjanna OG er að leika í sjónvarpsþættinum Glee!
Kate kemur fram í fjórðu seríu þáttanna þar sem hún mun leika samnemanda Rachel (Lea Michele) í NYADA skólanum. Kate mun sýna á sér nýja hlið en hún verður dálítið brattari en vanalega og ekki bara “góða” stelpan.
Karekterinn hennar heitir Cassandra July og er afar ögrandi eins og sést á myndinni
Þess má einnig geta að Sarah Jessica Parker mun einnig koma fram í nýju seríunni!
Það verður spennandi að sjá hvaða leikarar bæstast í hópinn í vetur en Glee hefur slegið í gegn bæði hér og erlendis.
__________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig