Leikkonan Kate Hudson var stórglæsileg á rauða dreglinum þann 29.ágúst síðastliðinn.
Kate var að kynna nýjustu kvikmynd sína The Reluctant Fundamentalist á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á Ítalíu sem er nú haldin í 69. skipti.
Það er óhætt að segja að stjarna hennar skíni skært um þessar mundir en hún á eins árs gamlan son (og annan fyrir). Líkt og gjarna vill vera með þessar Hollywood dömur er Kate strax komin í hörkuform eftir barnsburð og lítur betur út núna en nokkru sinni fyrr. Unnusti hennar Matt Bellamy var að sjálfsögðu með í för og voru þau stórglæsileg á rauða dreglinum.
Hér að neðan má sjá myndir af Kate þar sem hún geislar á kvikmyndahátíðinni.
__________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig