Kate Bosworth er leikkona sem ég hef lítið tekið eftir, hef vitað af henni en ekki haldið mikið uppá hana. Um daginn rakst ég á nokkrar “street-style” myndir af henni á einhverju bloggi og sá þá að hún er fabjúlus!
Hún er ein af þeim sem er alltaf flott, sama hvort það er á götum úti eða á rauða dreglinum. Hún er kannski ekki mjög öðruvísi en það þarf ekki alltaf!
Einfaldur, flottur, kvenlegur og töff stíll sem ég fíla í botn. Ég fór að gúgla fleiri myndir af henni og fann nánast enga mynd þar sem hún er ekki vel til fara. Svo er hún gullfalleg með bros sem bræðir.
Jafnvel þótt hún sé ekki uppáhalds leikkonan mín er hún komin ofarlega á best klæddu konur hjá mér.
Vel gert Kate!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.