Breska leikkonan Kate Beckinsale er í fantaformi á forsíðu tímaritsins Women’s Health en daman á aðeins tvö ár í fertugt.
Kate var aldrei þessi íþróttatýpa á sínum yngri árum og á grunnskólaárum datt engum það í hug að velja hana með sér í lið. Seinna meir fannst henni þeir sem að stunduðu ræktina vera með einhvers konar áráttu og skrítnir og enginn sem hún þekkti í London á þeim tíma stundaði ræktina -þannig að það var sjálfsagður hlutur að stunda það ekki heldur.
Nýjasta mynd hennar “Total Recall” er væntanleg í kvikmyndahús vestanhafs þann 3. ágúst og meðleikkona hennar enginn önnur en Jessica Biel.
Í myndinni eru ýmis bardagaatriði og þegar hún er spurð út í hvernig það var að berjast við Jessicu svarar hún að þetta sé enginn leðjuslags klám slagur heldur ALVÖRU slagsmál.
Kate segir að henni hafi fundist það aðeins öðruvísi að berjast við konu en karlmann því mikill tími fór í að afsaka sig og biðjast fyrirgefningar — “meiddi ég þig”?
Að lokum segir hún að sér finnst það ekkert tiltökumál að eldast: “þú eldist bara…”
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig