Þetta kallast á ensku að ‘Gera Demi’ eða ‘Doing a Demi’ eftir leikkonunni Demi Moore sem árið 1991 reið á vaðið með að sitja kviknakin og kasólétt fyrir á forsíðu Vanity Fair.
Ótal stjörnur fylgdu í fótspor hennar á eftir og komu naktar fram en gættu þess þó að skýla sínu allra heilagasta með höndunum. Meðal þeirra má nefna Cindy Crawford, Claudiu Schiffer, Myleene Klass, Jessicu Simpson, Danielle Lloyd og margar fleiri en sú síðasta til að sitja fyrir á nektarmyndum með barn undir belti er leikkonan Sienna Miller.
Þetta gerði hún nú í sumar fyrir listamanninn Jonathan Yeo en sá vinnur að seríu þar sem hann vinnur með frægar konur, nekt og barneignir.
Jonathan segist stoltur af leikkonunni að þora þessu og segir afraksturinn vera vitnisburð um sjálfsöryggi hennar og hugrekki. Hann hefur áður málað myndir af þeim Nicole Kidman og Erin O’Connor en myndirnar fara á sýningu á næsta ári. Myndin var máluð í júlí s.l þegar hún gekk með dótturina Marlowe.
Hann segist þekkja mikið af fólki sem hefur afkomu sína að mestu á útlitinu og myndi líklegast vilja fela sig í þá níu mánuði sem það tekur að ganga með barn en ekki Sienna, þrátt fyrir að vera mikið ICON í tískuheiminum, lítil og smágerð, fyrirmynd sem hefur setið fyrir á forsíðum ótal tískublaða.
Bíbí finnst þetta bara fínasta mynd af Siennu og ekkert athugavert við hana þó að hún myndi kannski ekki velja að hafa svona mynd af sjálfri sér uppi á vegg inni í stofu. Eða af annari konu? Þetta ætti betur við sem veggskraut á fæðingardeildinni eða hvað finnst þér?
Getum spáð í þetta á Facebook síðu Pjattsins þar sem kommentakerfið er opið 😉
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.