Draumur Victoriu rættist þegar hún fékk að sitja fyrir í myndatöku með engum öðrum en Karl Lagerfeld á heimili Coco Chanel heitinnar.
Myndirnar sem voru teknar á 31 Rue Cambon munu birtast í komandi tímariti ELLE.
Victoria sagði að hún væri afar spennt að vera í París, hún elskar, dýrkar og dáir París, elskar franskan stíl og haldi meira að segja að hún sé pínu frönsk sjálf (henni líði að minnsta kosti þannig).
Victoria sagðist einnig vera afar spennt að fá að vera með Karli á myndunum en hún virðir hann og finnst hann vera innblástur fyrir sig. Það að fá að sitja fyrir í myndatöku í húsi Coco Chanel sé draumur sem er orðinn að veruleika.
Karl sagði að Victoria hefði meðfædda hæfileika til að hanna, hún viti hvað henni líkar og hvað muni líta vel út og seljast vel.
Það verður spennandi að sjá hver útkoman verður hjá þessu dúói í ELLE -ég bíð spennt!
_______________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig