Kardashian systurnar meiga eiga það að þær eru snillingar í að markaðssetja sig.
Nýjasta afurð þeirra er snyrtivörulína sem heitir Khroma.
Elsta systirin Kourtney bloggaði um nýju línuna og sagði:
“Svo spennt að sýna ykkur myndir á bakvið tjöldin fyrir nýju snyrtivörulínuna okkar Khroma. AÐ gefa út snyrtivörulínu hefur verið langþráður draumur hjá okkur systrum í mörg ár og við erum alsælar að geta boðið upp á hágæða snyrtivörur á viðráðanlegu verði.”
Systurnar byrja á því að senda frá sér gerviaugnhár sem heita “Lash Dash” og koma þau í búðir bráðlega, restin af línunni kemur í sölu í byrjun árs 2013.
Hér að neðan má sjá myndir frá myndatökunni fyrir nýju línuna:
_______________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig