Kris Jenner, sem einnig er þekkt sem “Momager”, lætur ekki segja nei við sig. Mamma Kardashian systranna lét starfsmann Apple búðarinnar heyra það!
Kris hringdi í Apple búð í Los Angeles og bað starfsmann búðarinnar að taka frá fimm Iphone 5 fyrir sig og hún myndi síðan senda aðstoðarkonu sína til að sækja þá. Starfsmaðurinn sagði að hún þyrfti að bíða í röð eins og allir hinir, þá brást Kris illa við og sagði hin fleygu orð:
“Veistu ekki hver ég er”!
Síðan bað hún um að fá að ræða við yfirmanninn en enginn yfirmaður vildi tala við hana því það var ekki í boði að taka frá síma-sama hver þú ert!
Kris hefur greinilega farið einhverjar krókaleiðir og notað sambönd sín því þann 21.september stormar aðstoðarkonan inn í Apple búðina (fram fyrir röðina) og segist vera sækja fimm iPhone 5 síma fyrir Kris Jenner!
Þetta féll ekki vel í kramið hjá fólkinu sem beið í röð fyrir utan en það voru fleiri hundruð manns. Öryggisgæslan var hert til þess að aðstoðarkonan kæmist framhjá fjöldanum en einn aðdáandi símans sem stóð í röðinni kallaði á aðstoðarkonuna að bíða bara eins og þau hin.
Þegar símarnir voru svo loksins komnir í hús þá voru yngri systurnar, þær Kendall og Kylie, furðu lostnar yfir því hvers vegna mamma þeirra keypti hvíta Iphone 5 en ekki svarta því þeir svörtu eru mun svalari. Kris svaraði þá, í fullri alvöru….
“Shut the f*** up”!
Kris hefur greinilega þurft að hafa mikið fyrir því að fá símana og var því ekki ánægð með frekjuna í litlu dekur dúkkunum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig