Kanye West er yfir sig ástfanginn af raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian og skipuleggur afmælisveislu fyrir hana á einkaeyju!
Þetta er fyrsti afmælisdagur Kim sem þau eru par og vill Kanye ganga lengra en flestir aðrir myndu gera, Kim sem verður 32 ára ku vera alveg miður sín yfir því að vera tvískilin og barnlaus –OG orðin þetta gömul!
Rapparinn vinnur náið með fjölskyldu Kim til þess að allt verði fullkomið og eins og hún vill hafa það. Hann er meðal annars búinn að ráða fimm stjörnu einkakokk og kaupa rándýrar gjafir svo sem sérstaka útgáfu af Prada tösku, demantsarmband sem er þakið bleikum demöntum og Chanel kjól.
Kanye er þekktur fyrir það að dekra konurnar í lífi sínu en núna er honum alvara og ætlar því að ganga alla leið með veisluhöldum og gjöfum og já herlegheitin kosta um eina milljón dollara eða um 160 millónir króna!
Ó litla dekurrófan hún Kim!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig