Big Bang Theory leikkonan Kaley Cuoco hefur náð að halda einkalífi sínu vel frá slúðurmiðlum og segist vera nokkuð “normal” á mælikvarða glysborgarinnar.
Kaley er í viðtali í janúarhefti líkamsræktar og heilsublaðsins Self Magazine og þar spjallar hún um hitt og þetta. Hún skilur til dæmis ekkert í því hvar vinir og fjölskylda Lindsay Lohan og Britney Spears séu þegar þau sjá þær fara út án nærfata, “Er enginn sem segir þeim að fara í nærföt”? spyr hún. Kaley segist eiga frekar eðlilega foreldra og hafi átt sömu bestu vinkonu alla sína ævi og hún er nokkuð viss um að þau myndu segja henni ef hún væri að fara út í fötum sem sýndu eitthvað sem ætti ekki að sjást.
Eins og áður sagði telur Kaley sig vera nokkuð eðlilega en hún segist gráta oft og hlægja mikið, hún segir að það sé mikilvægt fyrir listafólk að halda engu inni og skapa sér umhverfi sem haldi þeim við efnið. Hún segir einnig að hún sé á góðum stað í lífi sínu núna og sé því óhrædd að gráta eða hlægja hvar sem er og hvenær sem er.
Kaley er hinsvegar óörugg með líkamann sinn og segist dæma sjálfa sig í speglinum á hverjum degi. Hún hefur mikið fyrir því að líta vel út og hreyfir sig reglulega. Spinning er það skemmtilegasta sem hún gerir í ræktinni og hún elskar víst buxur frá Spanx, þær eru uppáhaldið hennar í öllum heiminum, slétta, tóna og fegra líkamann að hennar sögn.
Partur af því að hún hreyfir sig svona mikið er að henni finnst ekkert mál að borða heila pítsu upp á eigin spýtur ásamt því að drekka nokkra bjóra með!
Morgunmaturinn er hinsvegar mikilvægasta máltíð hennar og hún fær sér hafragraut með vanillumöndlumjólk flesta morgna.
Ef hún fær sér ekki morgunmat er hún í skápunum alveg fram að hádegi að narta í eitthvað. Kannast einhver við það?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig