Justin Timberlake og Jessica Biel eru nýlega trúlofuð en hafa ekki enn ákveðið stóra daginn.
Jessica er á fullu að kynna nýju myndina Total Recall og hefur skartað nýrri hárgreiðslu í tilefni þess -Hún klippti á sig þvertopp.
Justin er alls ekki sáttur við nýja “lúkkið” á tilvonandi eiginkonunni og finnst hún vera full strákaleg með toppinn, Jessica er afar meðvituð um háa ennið sitt og gerir hvað sem er til að reyna að fela það en Justin er alltaf að segja henni að vera ekki með þessar áhyggjur af enninu-það sé í fínu lagi!
Honum finnst hún ívið sætari með hárið allt sett upp eða hliðarskiptingu og þungan topp.
Justin hlýðir reynar ekki unnustunni þegar hún biður hann að hætta að raka af sér hárið og safna því aðeins en heimildir segja að Justin myndi ekki taka það í mál að sjá Jessicu ganga niður kirkjugólfið með þvertopp!
Þar hafið þið það! Mikilvægar upplýsingar!
________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig