Mér þykir frekar leiðinlegt að viðurkenna það en ég hef mjög gaman af því að fylgjast með Kardashian fjölskyldunni og öllu því sem á daga þeirra drífur…
…Bæði finnst mér gaman að sjá hverju stelpurnar klæðast (en mér finnst Kourtney langbest klædd af þeim systrum) en svo getur þessi fjölskylda líka verið nett fyndin í þáttum sínum, þá aðallega Khloe að mínu mati.
Það er alveg fáránlegt hvað þau eiga sér ekkert ‘prívat’ líf, en eins og flestir vita þá hafa komið út ótal seríur um þessa fjölskyldu. Svo í þokkabót halda næstum allir meðlimir fjölskyldunnar úti bloggi þar sem allt er sýnt og sagt. Þannig að þau hata ekki beint athyglina.
Svo núna um jólin, eins og hver önnur fjölskylda, sendu þau vinum og vandamönnum (og öllum heiminum) jólakort með mjög ‘beisik’ fjölskyldumynd.
Ég rakst á þessa jólamynd af þeim þar sem allir eru í sínu fínasta pússi (þökk sé stílistanum Monicu Rose).
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að sjá hvernig Kardashian jólakortið fyrir árið 2011 varð til.
Ekkert vesen…bara förðunarfræðingar, pró-ljósmyndarar, stílistar, hárgreiðslufólk og aðstoðamenn.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.