Stórleikarinn Johhny Depp virðist vera kominn í smá krísu í sambandi sínu við leikkonuna Amber Heard.
Johhny er yfir sig ástfanginn af ungu leikkonunni en hún er farin að setja stólinn fyrir dyrnar og vill ekki að það komi meiri alvara í sambandið. Á meðan hann vill færa sambandið yfir á næsta stig reynir hún að fjarlægjast hann meira dag frá degi.
Amber hefur verið með kvenmönnum í gegnum tíðina en vill þó ekki vera kölluð lesbía því hún telur sig vera “frjálega þenkjandi”.
Henni finnst Johnny þrýsta fullmikið á sig í sambandinu og að sögn vina hennar er hún farin að fjarlægjast hann vegna þess að hann er ekki kona því hún heillast frekar að konum en körlum!
Amber er farið að líða eins og Johnny sé stóri bróðir hennar en það er 23 ára aldursmunur á milli þeirra og þegar þau eru saman þá líður henni eins og hún sé bara að gamna sér með stóra bróður án þess að það sé siðferðislega rangt.
Johnny hefur verið að reyna að hafa samband við Amber og fá hana til að hitta sig oftar en hún ýtir honum bara frá sér en hann þrjóskast áfram og virðist ekki skilja skilaboðin.
Stjörnurnar eru báðar afar uppteknar í kvikmyndaleik um þessar mundir og því er erfitt fyrir þau að reyna að hittast til þess að reyna að laga sambandið, ef það er þá eitthvað sambandi til þess að laga.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig