Sögkonan Jessica Simpson og unnusti hennar Eric Johnson eru búin að ákveða það tvisvar sinnum að ganga upp að altarinu en í bæði skiptin hefur hún orðið ófrísk!
Parið hefur verið trúlofað í tvö ár sem er langur tími á trúlofun vestanhafs en samkvæmt hefðinni giftir fólk sig yfirleitt innan árs.
Jessica segir að þau hafi verið búin að skipuleggja brúðkaup tvisvar sinnum, dagsetningarnar hafi verið klárar en þá hafi hún orðið ólétt, ekki einu sinni heldur tvisvar! Jessica sagði frá þessu þegar hún var gestur í sjónvarpsþætti Jay Leno í vikunni.
Jessica segir að þau séu að gera hlutina afturá bak en oftar en ekki giftir fólk sig fyrst og síðan koma börnin (í bandaríkjunum að minnsta kosti). Jessica sagði að seinna barnið hafi alls ekki verið planað en hún fylgi Guðs vilja og ef þetta er það hlutverk sem hann ætlar henni þá muni hún fylgja því.
Jessica var í áfalli þegar hún komst að því að hún væri strax orðin ófrísk aftur og hormónar hennar hafi ennþá verið í ójafnvægi eftir síðustu meðgöngu. Hún hafi verið að reyna að finna gömlu góðu hressu Jessicu aftur, þau fóru í rúmið og búmm, hún varð ólétt aftur!
Hún líkir þessu meira að segja við “one night stand” eða einnar nætur gaman þar sem að þetta hafi verið eitt einstakt skipti og algjörlega óvænt.
Jessica segir að hún sé að passa sig í mataræðinu í þetta sinn þar sem hún bætti verulega á sig á síðustu meðgöngu og fékk mikinn bjúg þannig að hún er undir ströngu eftirliti lækna í þetta sinn.
Á fyrri meðgöngunni var Jessica svo ánægð með að vera ófrísk að henni datt ekki einu sinni í hug að stíga á vigtina til að fylgjast með þyngdinni og hún hafi í raun og veru ekki tekið neinar skynsamlegar ákvarðanir varðandi mataræðið.
Jessica og Eric komust að því í sónar nýlega að þau eiga von á strák. Söngkonan er alsæl með að dóttir hennar fái lítinn bróður en það var alltaf draumur hennar að eignast strák því Jessica á sjálf eina yngri systur.
Nýr sjónvarpsþáttur er í bígerð sem er byggður á Jessicu og hennar lífi og mun Jessica “leika” sjálfa sig í þeim þætti. Hún segir að það verði mjög auðvelt þar sem að þetta er jú hún sjálf sem hún er að leika!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig