Jessica Simpson er aftur orðin barnshafandi, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa fætt dótturina Maxwell Drew Johnson í heiminn.
Að sögn heimildarmanns slúðurpressunnar vestra var þetta sannarlega ekki planað en vissulega sé hún ólétt.
Jessica og unnusti hennar Eric Johnson buðu Maxwell velkomna í heiminn í maí og söngkonan hefur verið í skýjunum yfir sínu nýja hlutverki í lífinu. Hún elskar hreinlega að vera móðir.
Nú er það spurning hvernig og hvort henni tekst að halda aukakílóum í skefjum út þessa meðgöngu en Jessica lauk nýlega við heljarinnar Smoothie Megrun þar sem hún missti tæplega 30 kíló!
Hún hefur jafnframt unnið stíft með einkaþjálfara og gerst talskona Vigtarráðgjafanna eða Weight Watchers.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.