Jessica Biel og Justin Timberlake eru nýgift og alsæl með lífið eftir rándýrt og glæsilegt brúðkaup á Ítalíu um síðustu helgi.
Jessica vill ólm fara að eignast börn og vill helst eiga tvö – stelpu og strák!
Jessica fylgir gömlum hefðum Bandaríkjamanna og vildi gifta sig áður en hún færi að hugleiða barneignir, núna er hringurinn kominn á fingurinn og hjónabandið klappað og klárt og því er ekki seinna vænna en að fara að byrja á lágréttu leikfiminni.
Tímasetningin hentar vel fyrir þau bæði samkvæmt vini þeirra en þau eru bæði í pásu frá kynningarvinnu eða öðrum verkefnum og ættu því að geta notið þess að vera saman og eiga dásamlega hveitibrauðsdaga á næstunni.
Jessica og Justin gáfu People tímaritinu viðtal eftir brúðkaupið og sögðu meðal annars að kvöldið hefði verið afar sérstakt, algjört ævintýri og draumur sem rættist með þessum degi.
Justin spilaði á gítar þegar Jessica gekk niður altarið í bleikum kjól sem var hannaður af Giambattista Valli. Justin samdi lagið sérstaklega fyrir brúði sína en hann klæddist sjálfur smóking frá Tom Ford.
Eins og áður sagði var brúðkaupið haldið á Ítalíu og vinir þeirra og ættingjar voru alveg til í að kíkja til Ítalíu til þess að skemmta sér og fagna deginum með þeim.
Justin sagði:
“Við vissum að þau ættu langt ferðalag fyrir vændum og ákváðum því að halda almennilega og skemmtilega veislu fyrir gestina okkar”.
…en gleðin varði alla helgina hjá Jessicu, Justin og gestunum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig