Jessica Simpson er ánægð með hvernig henni hefur gengið að missa aukakílóin sem hún bætti á sig á meðgöngunni.
Á meðan hún gekk með dóttur sína hugsaði hún lítið um mataræðið, læknarnir sögðu henni einnig að hún væri með mikinn bjúg og hann myndi fara eftir að hún væri búin að eiga og því hélt Jessica að mallakúturinn yrði bara flatur og flottur eftir fæðinguna -en hún sá fljótt að svo varð ekki raunin.
Að sögn Jessicu er hún ekki ofurfyrirsæta sem smellir sér í ofurform strax eftir fæðingu en Hollywood heimurinn er harður og berorður þegar kemur að því að léttast eftir meðgöngu.
Jessica hefur verið að missa aukakílóin hægt og rólega með hjálp sérfræðinga ásamt því að hreyfa sig, hún er í stuðningshópnum Weight Watchers sem hún hittir vikulega og eru aðeins nánir ættingjar og vinir hennar í þeim hóp. Þau ræða um baráttu sína við aukakílóin og hvernig þeim gangi að ná markmiðum sínum.
Jessica segist nálgast markmið sín hægt og rólega en hún fær aðeins 1200 hitaeiningar á dag að borða. Maturinn er sér útbúinn fyrir hana og sendur heim. Hún hreyfir sig einnig mikið og segir sjálf að hún sé nánast að svelta sjálfa sig með þessu öllu saman -úff ekki gott!
Ofan á alt álagið frá pressunni eru foreldrar Jessicu að skilja eftir 34 ára hjónaband en sögusagnir eru komnar á kreik um að Joe faðir hennar og fyrrverandi umboðsmaður sé hommi og að þau hjónin hafi verið skilin að borði og sæng í nokkra mánuði.
Við skulum vona að sérfræðingarnir sem eru að hjálpa Jessicu viti hvað þeir eru að gera svo að daman falli hreinlega ekki í yfirlið af ofreynslu og næringarleysi.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig