Tökur fara brátt af stað fyrir kvikmyndina Sin City 2: A Dame To Kill For og Jessica Alba æfir skotfimi sína ásamt því að aðlagast nýju útliti sem hæfir karakternum í myndinni.
Jessica er í hörkuformi eftir að hafa átt dætur sínar tvær, hún er komin með ljósa lokka og hárlengingar sem eru hluti af útliti hennar sem Nancy í Sin City.
Í seinni myndinni fylgjumst við með Dwight (sem Clive Owen lék) en hann er afar sár eftir að Ava Lord sveik hann og ætlar að hefna sín á henni og meðan hann leitar að Övu þá er Nancy miður sín eftir dauða Hartigan- (þetta kemur fram á IMDB).
Það verður spennandi að sjá útkomuna á seinni myndinni en hún er væntanleg í kvikmyndahús á næsta ári.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig