Jennifer Lopez hefur verið bæði í stormasömum og opinberum samböndum en núna er hún með yngri mann sér við hlið. Casper Smart er átján árum yngri en hún sjálf!
Jennifer sagði í viðtali við People tímaritið að hún hefði spurt Casper af hverju hann fyndi sér ekki bara yngri kærustu.
Er þetta virkilega það sem hann vill, að vera með einstæðri móður sem er tæpum tuttugu árum eldri en hann sjálfur?! Jennifer segir að þau eigi eftir að vera á ólíkum stöðum í lífi sínu eftir tíu ár. Kannski verði þau hætt saman og hann búinn að finna sér yngri konu eða þau verði ennþá saman og mjög hamingjusöm.
Jennifer segir að Casper hafi hjálpað sér mjög mikið þegar hún skildi við Marc Anthony og að Casper hafi verið til staðar fyrir hana en þessi væntumþykja hafi síðar þróast í ástarsamband. Jennifer er afar þakklát fyrir að hafa Casper í lífi sínu núna og segist vera mjög ástfangin.
Jennifer Lopez hefur eins og áður sagði verið í mörgum samböndum sem hafa ratað á blaðsíður slúðurblaðanna og ýmislegt hefur verið skrifað um hana og samböndin hennar.
Jennifer segist þó alls ekki sjá eftir neinu í lífi sínu því að þessir hlutir hafi mótað hana í þá manneskju sem hún er í dag.
Núna ætlar hún þó að vera varkárri en það er eitthvað sem hún hefur lært gegnum tíðina að hafa ekki allt sitt einkalíf upp á borðinu og opið fyrir almenning.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig