Jennifer Lopez er svaka skutla sem verður alltaf fallegri og fallegri með árunum sem líða.
Hún er söngkona, leikkona, dansari, ilmvatnsframleiðandi, fatahönnuður, dómari í American Idol og svo mætti lengi telja.
Eftir að hún varð mamma finnst mér geisla af henni og kroppurinn hennar er sjúklega flottur núna þó hann hafi nú ekki verið slæmur áður.
Lopez hefur gengið í gegnum ýmislegt og verið gift og trúlofuð nokkrum sinnum en sambönd hennar hafa oftar en ekki verið mikið slúðurfréttaefni og papprassarnir eru aldrei langt undan. Hún á tvíbura með Marc Anthony sem hún er nýskilin við og er komin með ungan mann sér við hlið. Persónulega finnst mér hún ekki líta út fyrir að vera eldri en 30 ára en hún er 42 ára!
Hér að neðan eru nokkrar myndir af henni þá og nú:
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig