Söngkonan Jennifer Lopez verður glæsilegri með hverju árinu og gefur ungu poppstjörnunum ekkert eftir í framkomu, orku og krafti.
Jennifer kom fram á Pop Music Festival sem fór fram í Sao Paulo í Brasilíu um helgina, þar flutti hún gamla slagarann “Love Don´t Cost A Thing” og einnig nýja lagið sitt “Dance Again”.
Jennifer var í þröngum gylltum glimmergalla og komu dansararnir með hana fram þar sem hún var með langan fjaðrahatt og í síðu pilsi en þröngi gallinn kom í ljós þegar þeir settu hana niður en óhætt er að segja að fatnaðurinn skildi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið.
Fröken Lopez er á fullu að undirbúa heimstúr með Enrique Iglesias en tónleikaferðin kallast “Dance Again” og bíða aðdáendur dívunnar spenntir eftir að sjá hana aftur live á tónleikum.
Hér að neðan má sjá Jennifer á tónleikunum að dansa við nýja kærastan sinn Casper Smart. Nýlega komu fram sögusagnir að hann væri ennþá inn í skápnum og væri aðeins að nota Jennifer til að koma sér á framfæri.
Við skulum nú bara vona að það séu ekkert meira en sögusagnir þar sem að þau eru ofurkrúttað par!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=cpZmKw2gkL8&feature=relmfu[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig