Jennifer Lopez er þrígift og hefur brennt sig á fyrri samböndum. Hún bað því Casper að skrifa undir trúnaðarsamning vegna fyrri reynslu.
Jennifer lætur alla starfsmenn sína skrifa undir trúnaðarsamning þegar þeir byrja að vinna hjá henni, Casper skrifaði að sjálfsögðu undir þannig samning þegar hann byrjaði að dansa hjá henni en hann er einnig búinn að skrifa undir annan samning.
Fröken Lopez bað Casper að skrifa undir trúnaðarsamning þeirra á milli ef þau myndu hætta saman. Samningurinn er þess efnis að Casper ræðir ekki hana sjálfa, fjölskyldu hennar eða samband þeirra eftir að þau hætta saman.
Casper skrifaði undir samninginn þegjandi og hljóðalaust og sagðist skilja ástæðu samningsins en Jennifer er afar opinber persóna og vill halda einkalífinu út af fyrir sig, sín og barnanna vegna.
Skötuhjúin fögnuðu eins árs sambandsafmæli um daginn og virðast vera hamingjusamari núna en nokkru sinni fyrr en sögusagnir hafa verið á kreiki að samband þeirra standi á brauðfótum.
Þau vísa þeim kjaftasögum á bak og burt og tjá ást sína til hvors annars á Twitter!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig