Því var aðeins haldið fram að J-Lo væri byrjuð með Bradley Cooper eftir að hafa skilið við Marc Anthony en fljótlega kom í ljós að þau eru bara vinir (hann á reyndar rosalega margar vinkonur).
Nú segja heimildarmenn Bíbíar í Hollywood að J-Lo sé byrjuð að deita annan dansara, strák sem heitir Casper Smart. Sá á að vera rosalegt kvennagull enda sé hann flottur ber að ofan og alveg sá hressasti.
Smart (töff að heita Smart), hefur leikið í myndum á borð við Honey 2 og Step Up í 3D og nýlega kom hann fram sem dómari á dansara í American Idol. Á föstudaginn skrifaði hann á Twitter að hann væri að fara að stíga á svið í San Fransisco með JLO og liðinu þannig að það er ljóst að þau þekkjast en það hefur ekki verið staðfest opinberlega að þau séu að deita – þó að rosalega marga gruni það.
Vonum bara að hún giftist honum ekki strax eins og hún gerði með síðasta dansara, Chris Judd, sem hún byrjaði með, og skildi svo við korteri seinna.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.