Jennifer Lopez er svo sannarlega þreföld ógn ennþá, hún dansar, syngur og leikur og ný kvikmynd er væntanleg frá henni á næstunni.
Kvikmynd hennar Parker er komin í sýningu í bandaríkjunum og það er von á henni í sýningu hér á landi á næstunni.
Jennifer er á fullu að kynna myndina núna en hún var í morgunþættinum Good Morning America fyrr í vikunni. Þar mætti dívan í hnéháum stígvélum og hlébarðakápu en fór síðan í fjólubláan kjól og skó þegar hún var komin í útsendinguna.
Söngkonan segir að hún hafi verið afar stressuð yfir því að hafa þurft að fækka fötum í kvikmyndinni en hún á tvö börn og fannst afar erfitt að sýna líkamann á filmu eftir barnsburð en kroppurinn hennar hefur lengi verið talinn sá heitasti í bransanum.
Jennifer segir að hún líti svona vel út í dag því hún hefur aldrei reykt eða drukkið og alltaf passað vel upp á að borða hollan mat.
Hún segir einnig að það sé mikilvægt að næra húðina með góðum kremum og SVEFN sé númer eitt, tvö og þrjú. Svefninn er án efa besta fegurðarráðið að hennar mati. Jennifer segist ekki vera búin að fara í bótox en neitar ekki að hún muni skella sér ef hún telur að það muni bæta útlit sitt eitthvað þegar fram líða stundir.
Jennifer og Casper eru nýbúin að fá sér lítinn hvolp og þau eru alsæl með litla hundinn sinn. Þau “twittuðu” að sjálfsögðu gleðinni áfram og sögðust vera að koma með viðbót í fjölskylduna sem var hæglega hægt að misskilja enda kom í ljós að það var hundur en ekki annað barn.
Það er greinilegt að það heldur Jennifer einnig ungri að vera með yngri kærasta en hérna skrifaði ég um það þegar hún sagði honum að finna sér yngri konu.
Smelltu svo HÉR til að lesa svolítið um fleiri ástæður þess að fara fyrr að sofa á kvöldin – kannski að við verðum bara jafn sætar og Jennifer með því að drepa í, hætta að drekka og fara fyrr að hátta? Það sakar ekki að prófa 😉
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig